Hiace til sölu
Toyota Hiace 1998
-Dísel
-5 manna
-4x4
-Beinskiptur
-Ekinn: 336.000
Demparar orðnir slappir, kosta allir 40.000 á fullu verði í umboði
Pústar út einhverstaðar, hef ekki látið kíkja á það.
Verð: 550.000

Íscross mót á laugardaginn!
Tekið af www.motosport.is
Laugardaginn 7 janúar ætlar MotoMos að halda bikarmót í íscrossi á Hafravatni. Keppnisgjaldið er mjög hóflegt, eða aðeins 3.500 kr. og mun skráning fara fram á vef MSÍ sem opnar væntanlega seinna í dag eða kvöld. Keppt verður í fjórum flokkum og eru þeir
- 85cc flokkur
- Kvennaflokkur
- Standard flokkur
- Opin flokkur
85cc og kvennaflokkurinn verður keyrður saman. Við munum keyra tvö moto á hvern flokk með sama sniði og á Íslandsmeistaramóti og verður lengd moto-a í öllum flokkum 12 mín + 1 hringur, sem er það sama og í Íslandsmeistaramótinu. Dagskráin hefst kl. 10:00 með skoðun hjóla og tímataka er áætluð að hefjist eigi síðar en kl.10:45. Reiknað er með að síðasta moto dagsins verði lokið um kl.13:30 og verðlaunafhending hefst kl.13:45. Dagskránna má sjá hér fyrir neðan í viðhengi en

Eins og ég tók fram að þá fer skráning fram á vef MSÍ og munum við auglýsa það sérstaklega þegar hún opnar sem verður væntanlega seinna í kvöld. Skráningarfrestur verður út fimmtudagskvöldið til kl.21. Aðstæður á Hafravatni eru ágætar og skoðuðum við það í dag.
Árétta skal að öll hjól þurfa að vera tryggð og með ádrepara sem virkar til að vera lögleg í þessa keppni. Engin trygging eða enginn ádrepari = engin keppni hjá viðkomandi. MotoMos mun ekki endurgreiða keppnisgjald til keppands sem skráir sig og er ekki með þessa hluti á hreinu. MotoMos áskilur sér jafnframt rétt til að færa til eða sameina flokka ef skráning verður takmörkuð. Einnig áskilur MotoMos sér til að falla frá notkun tímatökubúnaðar MSÍ ef þátttaka verður dræm og talið verður upp á gamla mátann.
Ef sú aðstaða kemur upp að ekki verður hægt að halda keppni, sem ég tel afar ólíklegt, að þá verður keppnisgjaldið endurgreitt til keppenda.
Hlutir til að viðhalda forminu...
Þar sem við stundum nú aðra erfiðustu íþrótt í heimi, að þá þurfum við að halda okkur í topp formi. Þeir í FitnessSport eru með nokkur sniðug tilboð núna fyrir jólin sem henta okkur hjólamönnum afar vel !

Alvöru Boxpúðastandur frá RONIN. Þær æfingar sem virka best fyrir mig til að halda mér í formi er Fitness Box. Ég hef prófað, Crossfit, Bootcamp ofl, en aldrei verið í jafn góðu formi og eftir boxæfingarnar. Það væri ekki vera að geta gert þær heima.
Fullt verð: 64.990 Tilboðsverð: 49.990

50 KG handlóðasett, með tveimur handlóðastöngum og einni beinni stöng.
Fullt verð: 49.990 Tilboðsverð: 34.990

20 KG handlóðasett með tveimur handlóðastöngum.

Síðast en ekki síst eru fæðubótarefnin. Þau skipta miklu máli, og ennþá meira máli að taka réttu efnin. Það eru mörg fæðubótarefni sem henta í hinar ýmsu íþróttir, en henta þó alls ekki í motocrossið. Motocross Pakkinn inniheldur kolvetnisdrykk frá Isostar sem hjálpar til við að auka úthaldið á æfingum, Monster Milk prótein sem er fullt af amínósýrum og vítamínum og síðst en ekki síst Glutamine sem er nauðsynlegt eftir æfingar, spornar við vöðvaniðurbroti.
Verð: 17.470 Tilboðsverð: 12.990
Fitness Sport - Faxafeni 8 - Skeifunni - www.fitnesssport.is








