Ný heimasíða!

Þá er komið að því! Loksins er búið að taka heimasíðuna mína og pimpa hana upp. Hann Jonni (productions.jonni.is), nýji liðsfélagi minn var svo viðkunnalegur að gera nýja heimasíðu fyrir mig, og vill ég byrja á því að þakka honum kærlega fyrir það :) Einsog þið hafið tekið eftir að þá er búið að vera heljarinnar hrærigrautur hjá mér síðustu daga, en ég er gífurlega stoltur af því að segja frá því að ég hef gert nýjan samning við Suzuki fyrir komandi keppnistímabil. Síðustu 5 ár hef ég verið að keyra Kawasaki fyrir Nítró og því mikil breyting fyrir mig að fara yfir í allt annað umhverfi. Ég vil þakka Nítró / N1 kærlega fyrir samstarfið í gegnum árin, og sérstaklega fyrir stuðninginn og skilninginn við liðsskiptin í ár, en ég var búin að skirfa undir samning hjá Nítró fyrir 2012 sem þeir góðfúslega riftu að minni beiðni. Það er mikil spenna og eftirvænting á mínu heimili fyrir næsta season og mig hlakkar mikið til að vinna með Suzuki hópnum. Það hefur myndast heldur betur góður hópur þar síðastliðnu daga og nokkrir af mínum bestu vinum komnir í Suzuki hópinn. 

Það mun taka mig nokkra daga að hlaða efni inná síðuna, en endilega kíkið við reglulega og athugið statusinn. Það verður margt um að vera hjá mér í vetur, og mikið um að vera hjá styrktaraðilum mínum sem ættu að koma ykkur til góða:)

Ég er með marga góða stuðningsaðila fyrir komandi season, og margir af mínum "gömlu styrktar aðilum" sem tóku mér opnum örmum þegar ég ákvað að snúa aftur til leiks í Íslandsmótið. Bið ykkur endilega að skoða styrktaraðilana mína hér á síðunni og vonandi eigum við eftir að eiga góða tíma framundan saman.

Aron Ómars #66

Suzuki 

DC
  
TCX Skór Ísland
Lífstíll Líkamsrækt
Fitness Sport