Suzuki gefur af sér..

Það borgar sig að vera Suzuki ökumaður ef þú býrð í Ameríku, en Suzuki hefur ákveðið að gefa yfir 500 milljónir í verðlaunafé fyrir þá sem standa sig vel og keyra á Suzuki. Ameríkanarnir eru með svokallað "contingency program" en það felur í sér að verksmiðjuframleiðendur gefa fé fyrir hvern þann sem stendur sig vel á þeirra tegund, og er misjafnlega hátt eftir standard keppna. Þetta er virkilega sniðugt og virkar greinilega vel, því þegar við Binni vorum úti 2008, að þá voru menn að kaupa sér hjól eftir því hver var að borga best fyrir þær keppnisseríur sem menn ætluðu sér að keppa í. Sá sem við Binni bjuggum hjá skipti frá Hondu yfir á Suzuki vegna þess hve vel þeir borguðu fyrir þær keppnir sem hann tók þátt í. 

Spurning hvenær svona system kemst í gang hérna á Íslandi, en það er ekki laust við að það verði eitthvað spennandi í gangi fyrir okkur íslendingana í ár, því lítill fugl hvíslaði því að mér að Suzuki á íslandi ætli sér að vera með eitthvað í pokahorninu sem ætti að gera ansi marga spennta :) Hver vill ekki vera gulur í dag spyr ég ?

Suzuki 

DC
  
TCX Skór Ísland
Lífstíll Líkamsrækt
Fitness Sport