Aron66.is

Límmiða kit

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Fyrir þá sem hafa áhuga á að eignast límmiðakit fyrir sumarið, að þá er ég að fara að panta kit sem kemur til landsins vikuna eftir Klausturs keppnina. Hægt er að smella hér , velja þína hjólategund og skoða úrvalið á því sem er í boði. Full kit (á allt hjólið) með ykkar nafni, ykkar keppnisnúmeri og ykkar sponsorum kostar 30.000. Þetta er alvöru, þykkt límmiðakitt sem eyðileggst ekki við háþrýstiþvott. Þeir sem vilja panta sér sett verða að senda mér email á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn á límmiðakiti
Hjólategund og árgerð
Keppnisnúmer
Litur á bakgrunni númeraspjalda (Hvítur bakgrunnur fyrir Mx1 sem dæmi)
Litur á keppnisnúmeri (hvítir stafir fyrir Mx2 sem dæmi)
Sponsors (senda mér öll logo ykkar sponsora)
Sponsors (senda mér hvar logo eiga að vera á kittinu)
Fjöldi (hversu mörg sett þið viljið)
Email
Símanúmer
Fullt nafn.

Síðasti séns á að panta kit er núna á föstudaginn 14.maí

 

 

Deila á:

Facebook   
 

1.umferð Enduro

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Ákvað að skella mér í fyrstu umferðina í enduroinu sem fór fram á laugardaginn. Eftir miklar vangaveltur ákvað ég að vera með að gamni, og til að sækja mér smá úthald þar sem formið er ennþá hálf slappt eftir viðbeinsbrotið. Ég skellti gömlum dekkjum og mús á felgurnar og mætti á línu. Ég náði ágætist starti og kom þriðji útúr fyrstu beygju og fljótlega var ég orðin annar á eftir  Kára og hóf að elta hann inneftir í Jósepsdalinn.

 

Ég náði að elta hann nokkra metra, en þegar við komum að fyrstu grjótbrekkunni sem lá yfir hálsinn og inní jósepsdal, stallaði ég hjólinu sá Kára hverfa yfir hæðina. Hjólið fór reyndar í gang eftir eitt kick en þegar ég var að klöngrast af stað aftur hringsnéri ég hjólinu og varð að fara niður aftur og byrja uppá nýtt. Þá sá ég að Valdi var að nálgast, en ég náði þó að halda öðru sætinu. Ég komst loks yfir hæðina og sá Kára vera að dunda sér við að stinga okkur hina af. Ég stallaði svo hjólinu tvisvar eftir það á meðan ég var að átta mig á gíringunni í bröltinu, komst svo að því á hring tvö að ég varð bara að vera í fyrsta gír í þrengstu köflunum.

 

Ég var búin að reikna það út að ég þyrfti að koma inní bensín þegar keppnin væri hálfnuð, eða í kringum 1 klukkutíma og kortér. Þegar ég kom inn á þriðja hring var ég búin að keyra í klukkutíma og 3 mínútur og þar sem hringurinn var um 20 mínútur hélt ég að ég myndi sleppa einn hring enn. Það var hinsvegar ekki og ég varð bensínlaus lengst inní Jósepsdal. Þar sem það má ekki fylla bensín á hjólið nema á pittsvæði, fékk ég bara lánað bensín hjá áhorfanda og druslaðist svo inní pitt og horfði á restina af keppninni.

Ég var þokkalega sáttur með árángurinn þó þetta hafi verið mjög svekkjandi. Ég held ég skelli mér bara í næstu umferð og setji jafnvel almennilegt dekk undir hjólið, þar sem ég var oftar nær dauða en lífi á flest öllum köflum brautarinnar nema í sandinum.

 

Fínt afturdekk 

 

 Fleiri myndir inná www.mxs.is

Deila á:

Facebook   
 

Motocross Skólinn

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Þeir sem eiga eftir að greiða fyrir sumarnámskeið Motocross Skólans, þá vil ég bara minna ykkur á að á morgun er síðasti séns á að ganga frá greiðslunni ef þið viljið tryggja ykkur þáttöku. Nánari upplýsingar er að finna á www.mxs.is

 

Deila á:

Facebook   
 

Límmiðakitt

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Ég er að fara að setja af stað pöntun á límmiðakittum fljótlega, sem eiga að vera kominn til landsins fyrir klaustur. Endanleg verð á límmiðakittin eru ekki staðfest ennþá, en ég fæ að vita verðin eftir helgi. Þeir sem hafa áhuga á að ná sér í límmiðakitt fyrir sumarið með keppnisnúmerinu sínu, nafni og sponserum geta farið að skoða sig um á www.mgxunlimited.com Farið í dálk sem heitir "semi-custom" og þar eru nokkur sýnishorn. Ef mönnum lýst á einhver kit þarna, en myndu vilja breyta litasamsetningunni að þá er það minnsta mál. Einnig er hægt að láta þá hanna kit frá grunni ef þið eruð með ykkar eigin hugmyndir.

Deila á:

Facebook   
 

Hitt og Þetta

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Það eru hrikalega spennandi tímar framundan í keppnishaldu um allan heim. Heimsmeistarakeppnin að fara til Ameríku í fyrsta skiptið í 11 ár, AMA Outdoors að fara að byrja, fyrsta enduro keppnin á Íslandi, svo ekki sé nú minnst á klaustur!

Byrjum á heimsmeistarakeppninni. Þriðja umferðin verður í Valkenswaard, sem er umþb. klukkutíma frá þar sem ég bý, auðvitað skellir maður sér þangað að heimsækja vini sína. Það er búið að vera þvílíkt mikið hype yfir Herlings hérna frá því í Ítalíu, enda "heima Gp-ið" hans í Hollandi. Það eru all nokkur ár síðan hollendingar hafa átt pening, nei meina góðan ökumann. Marc DeReuver virtist ætla að verða þeirra "next big thing" en það varð aldrei. Herlings er heldur betur að stimpla sig inn og sama við hvern maður talar í hollandi, þá sjá þeir ekki ljósið fyrir honum. Það var haldin sér blaðamannafundur eingöngu fyrir hann í vikunni á Valkenswaard brautinn þar sem hann tók svo hring í brautinni eftir fundinn. Brautin lítur vææængefið vel út á videoinu !

">

 

Know the Dycker einsog það þýðist yfir á ensku, eða Ken De Dycker hefur ákveðið að taka þátt í fyrstu umferð AMA mótaraðarinnar sem fram fer á Hangtown brautinni í byrjun júní. Hann sagðist ætla að taka einhverjar keppnir í ameríku þetta árið, hann byrjar á Hangtown og sér svo til með framhaldið. Ætli hann sé að reyna að plögga sér inní Ameríku fyrir næsta ár?

 

Ef við skellum okkur yfir til Ameríku, þá er semy silly season þar fyrir komandi Outdoor tímabil. Nú þegar 3 keppnir eru eftir af supercrossinu, eru menn þegar farnir að testa fyrir utanhús tímabilið. Nick Wey mun fara aftur yfir í Monster Energy Kawasaki liðið það sem eftir er að supercross tímabilinu, fyrst fyllti hann inní fyrir Chad Reed sem var meiddur, en nú mun hann fylla inní fyrir Villopoto sem braut á sér löppina síðustu helgi.

 

Ricky Dietrich sem margir kannast við úr endurocrossinu og enduroinu, hann ætlar sér að taka þátt í Glen Helen heimsmeistarakeppninni, og mun keppa fyrir Enduro liðið sem hann er á samning hjá bara uppá fun-ið. Hann leysti einmitt af í fyrrasumar Villopto þegar hann fór í aðgerðina á hnénu, og endaði 5. overall í sinni fyrsu Outdoors keppni. Hann baðst meira að segja afsökunar fyrir að hafa keyrt svona hægt því hann hefði ekki verið að fýla sig í brautinni. Dietrich segist vera spenntur fyrir að keppa í Outdoors motocrossinu í sumar, þó það sé ekkert ákveðið, en segist vera pínu að vonast eftir að fá símtal frá Mike Fisher liðsstjóra Monster Energy Kawasaki um að fá að fylla aftur inní fyrir Villopto þar sem hann mun missa af fyrstu 2-3 umferðunum.

 

Brett Metcalfe hefur ákveðið að færa sig yfir í 450cc flokkin í sumar, en mun þó áfram keyra fyrir GEICO Powersports Honda, þó þeir séu basicly Lites team, en hafa stutt við bakið á Windham í supercrossinu. Fékk senda mynd af Metcalfe á nýja 450 hjólinu sínu þar sem hann var að æfa í vikunni.

 

Chad Reed, og konan hans Ellie eiga von á sínu fyrsta barni hvað og hverju. Ellie er kominn fram yfir tilsettan tíma og lýsti Chad Reed því yfir að hann yrði ekki með í Seattle supercrossinu um helgina. Það er víst breytt, og Reedarinn verður með. Þó maður nennir nú varla að fylgjast með þessu lengur þá vona ég svo innilega að Reed og Windham grilli Dungey það sem eftir er.

 

Svo var hérna skemmtileg frétt um rally driverinn Ken Block og þjálfarann hans Ryan Hughes, en þeir urðu fyrir barðinu á Eyjafjalla jökli einsog svo margir aðrir:

"Ken Block and his trainer Ryan Hughes found themselves stuck on the other side of the planet in Turkey after the volcano in Iceland basically locked down air travel in Europe for most of the last week. Ryno finally made it home on Tuesday night after a 42-hour trip that included four flight delays! As for Block, he did have time to work on his new Gymkhana 3 video, which follows the two previous ones—the first of which has been seen by more than 30 million people on YouTube alone! The new video comes out this summer, and the details of what he does in his new Ford Fiesta Gymkhana car and where it all took place is still a closely guarded secret."

 

Deila á:

Facebook   
 

icemoto.is

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Aron hjá Icemoto.is hefur opnað síðuna að nýju, með nýju útliti og fídusum. Öflug fréttasíða sem vert er að kíkja á. Rakst einmitt á gamla mynd af mér þar inná síða 2008 úr MotoMos. Þarna er ég að hjóla í fyrsta skipti efti ökklabrot. Þeir voru búnir að setja nýjan rythma kafla í brautina sem menn áttu í erfiðleikum með, og á meðfylgjandi með er ég að reyna að "tripla" síðasta kaflan í wúpsunum. Ef þið horfið vel á lapirnar á mér, að þá er ég í nýjum Tech8 á hægri löppinni, en þurfti að vera í gömlum slitnum Gaerne hinum megin, og hafa smellurnar lausar því ég gat ekki lokað skónnum vegna þess að ökklin var svo bólgin. Þarna var maður ungur og vitlaus. Ekki taka þetta til fyrirmyndar :)

 

Deila á:

Facebook   
 

Keppnis Einkaþjálfun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Ég hef ákveðið að halda áfram með einkaþjálfun í Motocross í sumar, en einungis eru laust pláss fyrir 4 einstaklinga.  Þetta varða tveir hópar, og í hverjum hóp verða tveir einstaklingar sem munu alltaf æfa saman. Æfingarnar fara fram 2x í viku. Hvert tímabil er einn mánuður, eða 8 æfingadagar. Ekki þarf að taka alla mánuðina, hægt er að kaupa bara júní, bara júlí eða bara ágúst. Fyrstir koma, fyrstir fá, þó með tilliti til þess að ef einhvern bókar allt sumarið, þá á hann forgang. Þetta er ekki hópþjálfun, heldur pjúra einkaþjálfun sem er sett þannig upp að nemendur hafi æfingafélaga allt sumarið, því það hefur sýnt sig og sannað að það að hafa æfingafélaga, skilar betri árangri. ATH! Þjálfunin sem um ræðir er einungis ætluð keppnis fólki með metnað og hefur áhuga á að ná árangri og er tilbúin að leggja á sig það sem þarf til að ná árangri. Fýlupúkar, letingjar og neikvæðir einstaklingar er ekki heimiluð þáttaka. Einnig eru þeir einstaklingar ekki velkomnir sem ekki kunna að meta það sem þeir eru með í höndunum og halda að kraftpúst, nýtt fatbar stýri eða nýji Chad Reed gallinn geri gæfumunin. Ég legg allan minn metnað í mína þjálfun um að nemendur mínir sýni bætingu, betri árangur í keppnum og nái sem mestum árangri, og geri því kröfu um að nemendur sýni metnað til baka og vilja um að ná sömu markmiðum. Þeir sem hafa áhuga á  Keppnis þjálfun í sumar geta sent mér línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Svo er á dagsskrá sérstakt "Klausturs námskeið" getið lesið allt um það hér.

 

Deila á:

Facebook   
 

Chad Reed reiður

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Rakst á mjög svo áhugavert viðtal við Chad Reed þar sem hann talar opinskátt um það sem betur má fara í supercrossinu og hvernig honum finnst það vera að þróast. Hann talar einnig um kaflann þar sem Villopoto brotnaði, þar sem það sást í sjónvarpinu þegar hann var að biðja þá um að breyta kaflanum, og svo var aftur sýnt þegar þeir fóru með bobcat að breyta honum. Hann segir það hafa verið feikað atriði og þeir hafa í raun engu breytt. Hann lætur þá hjá Feld Racing alveg heyra það.

Smellið á myndina til að sjá viðtal

Deila á:

Facebook   
 

Race Report - BMB Mons

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Um helgina, nánar tiltekið Sunnudaginn 19.apríl fór ég og keppti í þriðju umferð BMB mótarraðarinnar sem fram fór á Mons brautinni í franska hlutanum neðst í Belgíu. Stóð til að fara á hollenska meistaramótið og horfa á Bryndísi frænku keppa en tók ég þá skyndiákvörðun seint á laugardeginum að keppa frekar sjálfur þar sem það styttist í heimferð hjá mér. Á laugardeginum fór ég að hjóla með Stebba flugvirkja sem ég minnst á áður, en hann vinnur á flugvelli hérna í belgíu. Við fórum í braut sem heitir Veldhoven og er í Hollandi. Brautin þar var í svo hrikalega góðu ástandi, þurr sandurinn, mjög svipað færi og er yfirleitt í þorlákshöfn. Eftir góðan dag í þeirri braut var farið og græjað hjólið fyrir morgundaginn, dekkjaskipti, hugsanlega þau lengstu í sögu mótorhjólsins, olíu skipti og allskyns viðhald. Hjólið var orðið klárt frekar seint um kvöldið og ég var ekki farinn að sofa fyrr en 2 um nóttina. Stebbi bauðst til að koma með mér og mekka fyrir mig þar sem engin vinna var hjá honum, þökk sé Eyjá-fjá-dla-jókúl Glaciar. Við sváfum heima hjá honum þar sem hann býr nær brautinni en það var ræs klukkan 6 um morgunin, þar sem eg þurfti að vera mættur fyrir klukkan 8 til að skrá mig til leiks.

Ég ætlaði að færa mig niður um flokk, og skrá mig í National Mx1 flokk, sem er flokkurinn fyrir neðan Pro flokkinn. Þeir tóku það ekki í mál kvikyndin í skráningunni þar sem þeir sáu að ég hafði keppt í Pro flokknum síðast. Þannig ég skellti mér bara í Pro flokkin, sem þurfti að keyra 30 mín +2 hvert moto í þessari braut, sem var ein þyngsta sandbraut sem ég hef keyrt hérna, hún grófst svaðallega. Xavier Boog frá Factory Kawasaki liðinu var í mínum flokk, ásamt Anthony Bossiere frá Factory TM liðinu og Gert Krestinov sem keyrir fyrir eistneskt Kawasaki lið. EFtir tímatökur var ég í 28. sæti af 32. og var í svaka stuði og fýlaði brautina geðveikt vel.

Mættur í waiting zone fyrir fyrsta moto.

Fyrsta motoið gekk mjög illa. Ég lenti í því í fyrstu beygju, að það var strákur sem fór fram fyrir sig, og lenti á mér. Við það fór ég á hausinn og svo kom hjólið hans á eftir okkur og lenti ofan á mínu hjóli. Þegar ég stóð upp og rankaði við mér, reisti ég hjólið við og sá þá að það vantaði aftara hliðarplastið á. Ég þurfti því að fara inní pitt og setja nýtt plast á og við það missti ég úr 3 hringi. Stýrið var líka rammskakkt en það var engin tími til að rétta það. Ég dreif mig aftur út til að ná sem mestum tíma í brautinni, bara uppá æfinguna að gera. Ég lenti í hörku reisi við strákinn #39 á myndinni fyrir ofan, og þegar tveir hringir voru eftir stökk ég frammúr honum á stæðsta pallinum í brautinni sem hann var ekki að stökkva. Ég var þó 3 hringjum á eftir honum útaf krassinu og endaði 29. af 32.

Hérna er ég á leiðinni inní pitt, sjáið hvað stýrið er skakkt.

Það voru 3 tímar í næsta moto, svo ég hafði nógan tíma til að dunda í hjólinu og hvíla fyrir næstu 30 mínútur. Ég hafði greinilega lent á úlnliðnum í krassinu, því eftir fyrsta moto byrjaði hann að stífna verulega upp og ég fann að ég hafði greinilega tognað. Ég hugsaði þó með mér, að þar sem þetta var nýbúið að ske að þá væri hægt að hamast aðeins á hendinni lengur án þess að finna fyrir því, því yfirleitt finnur maður lítið fyrir tognunum fyrr en daginn eftir. Ég skellti mér í annað moto, að drepast í hendinni á startlínunni. Um leið og hliðið féll þá hvarf sársaukin að hendin var alveg til friðs allt motoið. Ég datt í svaka gír og lenti strax aftur í reisi við strákinn #39. Hann setti smá bil á mig í byrjun, en þegar líð fór á mótóið fór ég að nálgast hann hratt og ég var stein hissa á því hvað ég entist lengi á topp hraða, sérstaklega þar sem brautin var orðin algjörlega ónýt. Ég lenti í því að stolla hjólinu þegar um 7 mínútur voru eftir á klukkunni, og því setti #39 aftur bil á mig. Ég var samt frekar snöggur í gang og setti hraðasta hringinn minn á næst síðasta hring! Ég var búin að sækja verulega á hann og kom rétt á eftir honum í mark, og endaði í 23.sæti í því motoi.

Hendin var greinilega ekki ánægð með mig og um leið og ég kom inní pitt eftir síðasta motoið þá var verkurinn í hendinni orðin gríðarlegur. Ég átti erfitt með að klæða mig úr gallanum og svaf lítið nóttina eftir. Daginn eftir var hendin svo orðin þreföld og öll skökk og ég var skíthræddur um að hún væri mölbrotinn. Í dag eru þó mestu bólgurnar farnar úr og ég er farinn að geta notað hendina. Stefni á það að fara að hjóla á morgun.

Það náðust engin stig þennan daginn. 29. í fyrsta moto og 23. í því seinna.

Það fer að styttast í heimkomu, en ég verð væntanlega komin heim fyrir fyrstu enduro keppnina. Það hefur hvarflað að mér að taka þátt í henni, en þó er ekkert ákveðið.

Ég eignaðist annan nýjan vin þennan daginn, reyndar tvo, það voru þeir Xavier Boog og pabbi hans.

 

Deila á:

Facebook   
 

Klausturs námskeiðið 2010 !

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Við viljum vekja athygli okkar á „Klausturs námskeiðinu 2010“. Fyrir þá sem vilja ná sér í forskot á sæluna og mæta vel undirbúnir til leiks á klaustri, reynslunni ríkari að þá verðum við með þriggja daga námskeið dagana 11.(þri) - 13.(fim) og 15.(lau) Maí.
Kennt er frá 18:00 – 20:00 virku dagana, og 10:00 – 12:00 á laugardeginum. Námskeiðið kostar 9.000 og er skráning hafin á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. flóknara en það er það nú ekki :) ATH! Námskeiðið er þó ekki einungis fyrir þá sem ætla að keppa á klaustri, öllum er frjálst að skrá sig.

Kv, Aron og Össi
Motocross Skólinn
www.mxs.is

Deila á:

Facebook   
 
Síða 2 af 4

Sponsors

nitrologosmall23







mxs.is


Nýjustu fréttir

Vinsælast