Aron66.is

Mike Alessi riding

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Í vikunni náðust video af Mike Alessi vera að æfa sig fyrir komandi utanhúss tímabil, og fyrstu FIM heimsmeistarakeppninnar sem haldin hefur verið í Ameríku síðan 1999. Sögusagnir hafa verið í gangi um að hann hafi slitið samstarfinu við KTM, en svo virðist ekki vera. Í viðtali sem tekið var við Stefan Everts nú á dögunum, sagði Stefan sjálfur að virkilega erfitt væri að vinna með Alessi og fjölskyldu en sagði þó jafnframt að hann yrði á KTM þetta season. Alessi virtist ekki að vera að fýla sig í evrópu og var ekki að keyra nálægt þeim hraða sem topp ökumennirnir voru á, en það verður gaman að sjá hvort hann hefur eitthvað í Cairoli og félaga þegar þeir koma til Ameríku. Cairoli mun fara til Ameríku tvem vikum fyrir keppnina þar sem hann mun dvelja og æfa með Alessi.

Smellið á mynd til að sjá video

Deila á:

Facebook   
 

Nýr vinur!

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Það var heldur betur fjör á fróni í gær í HondaPark brautinni en þar voru saman komnir margir af topp ökumönnum heims. Næstu helgi fer fram þriðja umferð FIM heimsmeistarakeppninnar í Hollandi í braut sem kallast Valkenswaard. HondaPark er með svipaðan jarðveg og Valkenswaard og voru þess vegna svona margir góðir að hjóla þarna þennan daginn, testa fjöðrun og annað. Fremsur í flokki var auðvitað Aron Ómarsson frá íslandi, einnig voru menn á borð við David Phillipaerts, Max Nagl, Jonathan Barragan, Sebastian Pourcel, Xavier Boog, Carl Nunn, Matis Karro, Zach Osbourne, og nýi besti vinur minn Steven Frossard. Steven Frossard var að æfa með mekkanum sínum og pabba sínum, en varð svo óheppinn á fyrstu hringjum dagsins að eyðileggja pústið sitt. Það vildi svo heppilega til að skúrinn minn er örfáum mínútum frá HondaPark, svo ég bauðst til að bruna í skúrinn hjá mér og sækja annað púst svo hann gæti klárað daginn. Þeir voru ekkert smá ánægðir með þetta og núna er ég efstur á vina lista CLS/ProCircuit/Monster Energy/Kawasaki liðsins. Hann vildi endilega gefa mér símanúmerið sitt og sagði að ef mig vantaði eitthvað að ekki hika við að hringja. Síðan spjölluðum við heillengi og ég fékk nokkur hernaðar leyni factory tips.

Steven Frossard chillin with #66 !

Ég var illa sáttur með daginn, fiktaði helling í fjöðruninni og lærði marga nýja hluti. Eftir að hafa fengið nokkur tips frá mekkanum hans Frossards fór ég úr 1:52 niðrí 1:44 ! Svo mikill var munurinn. Ég var heavy sáttur með hraðann sem ég var kominn á þá og var farinn að keyra á svipuðum tímum og Carl Nunn, enn hann átti best 1:43 og var að fara allt uppí 1:46. David Phillipaerts var að keyra á best 1:36 og var lang hraðastur af öllum pro gaurunum sem voru að hjóla þann daginn. Hann er í svaka formi og ég held að hann eigi eftir að eiga gott sumar í ár!

                                                                                                      Nýi vinur minn, Steven Frossard #183

Ég er að detta í hrikalegan gír núna, og þá er voðinn vís. Fyrsta vikan núna sem ég er farinn að geta tekið armbeygjur, þannig ég er búin að taka hrikalega á því í vikunni. Ég hef ekkert æft líkamlega síðan í desember, en svo brotnaði ég í byrjun febrúar og er rétt að ná mér núna. Öxlin er orðinn góð og ég er kominn á fullt skrið. Verð kominn í topp form fyrir fyrstu motocross keppnina á Ólafsfirði í júní. Það fer að styttast í heimför en ég ætla að koma heim í byrjun maí, og gæti hugsanlega verið að þið sjáið mig á klaustri.

Um helgina verð ég í hollandi að hvetja Bryndísi og Frossard áfram en á sunnudaginn fer fram þriðja umferðin í Hollenska meistaramótinu. Það verður gaman að sjá það en DeDycker, DeReuver, Strijbos, Herlings, Frossard, Roelants, Triest og fleiri eru skráðir til leiks.

Frossard varð þriðji í Mantova á Ítalíu síðustu helgi. Hann kann alveg að hjóla smá.

Deila á:

Facebook   
 

Dempara tjún !

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Einsog einhverjir vita sem hafa verið að fylgjast með mér hérna úti, að þá er ég að vinna í Hollandi í fyrirtæki sem heitir Ultimate Suspension Þetta er fyrirtæki sem sérhæfir sig eingöngu í fjöðrunar stillingum fyrir motocross og enduro ökumenn. Ultimate Suspension sér um demparana hjá gífurlega mikið af ökumönnum í evrópu, mörgum stórum keppnisliðum og ökumönnum á borð við Antti Pyrhonen, Herjan Brakke, Robert Justs, einnig hefur hann verið að servica á keppnum fyrir mörg stór lið á borð við Ricci Yamaha og fleiri. Ég hef verið að heyra sögur að heiman að menn séu að borga einhvern 90.þúsund kall bara fyrir aðra gorma, og þá er eftir vinnan og ekki einu sinni aðrar ventlastillingar. Han hjá Ultimate hefur unnið við dempara allt sitt líf, alveg frá því að hann hætti í skóla 16 ára og veit alveg uppá hár hvað hann er að gera þegar kemur að dempurum. Ég fékk hann til að gera smá pakka díl fyrir íslenska ökumenn og hann ætlar að bjóða okkur á að taka demparana í gegn fyrir um 350 evrur, sem er rétt tæpur 60.000 einsog gengið er í dag! Í þessum pakka er bara uppsetning frá A til Ö, eins mikið og hægt er að gera.  Réttir gormar fyrir hvern og einn að bæði framan og aftan, ásamt því að hann setur demparann upp fyrir íslenskar brautir, og stíl hvers og eins. Einsog þið sjáið á myndinni fyrir neðan, að þá er það ekki bara réttir gormar í dempurunum sem eru aðal atriðið. Það eru yfir milljón stillingar sem hægt er að gera með litlum skinnum og græjum sem ég hef ekki einu sinni hugmynd um ennþá hvað er. Ég get líka hjálpað til við flutningskostnað með að koma dempurunum frítt heim, ég kem væntanlega heim í byrjun maí, og get þá kippt dempurunum með mér frítt. Þið þurfið þá bara að sjá um flutningin út sjálfir/sjálf. Tíminn er naumur, klaustur fer að bresta á, þeir sem vilja vera rétt upp settir fyrir sumarið, auka öryggið á hjólinu og minnka slysahættuna með vanstilltum dempurum, geta haft samband við mig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. !

 

Deila á:

Facebook   
 

Tommy Searle - Interview

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Viðtal við Tommy Searle. En hann mun taka þátt í heimsmeistarakeppninni sem fram fer á Glen Helen í Ameríku ásamt Mike Alessi fyrir FMF/KTM liðið í Ameríku. Ekki eru margir ameríkanar búnir að staðfesta komu sína, fyrir utan það að DeCoster mætir með öll tæki og tól til að hjálpa Rockstar Teka Suzuki liðinu, hann sagðist þó ekki ætla að senda neina ökumenn frá sér. Pro Circuit Kawasaki verður á staðnum til að hjálpa Jeremy Van Horebeek og Steven Frossard hjá CLS Kawasaki. Monster Energy Kawasaki eru búnir að staðfesta komu sína, þó ekki hvort þeir ætli að keppa. Nick Wey og Broc Tickle eru þeir einu sem eru búnir að segjast vilja taka þátt, ég held þó að fleiri bætist í hópinn þegar nær dregur. Það verður gaman að sjá. Ég vona að James Stewart mæti, það eru sögusagnir um það.


Smellið á myndina til að sjá viðtalið við Tommy Searle 

Deila á:

Facebook   
 

James Stewart - MXON Markmidid !

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Thad er erfitt ad vera fraegur segja their sumir, sérstaklega thegar thú heitir James Stewart. Hann hefur verid harkalega gagngrýndur fyrir ad keyra ekki utanhús og einblína eingongu á supercross. Hérna er flott vidtal vid kappan thar sem hann segist vera med thad markmid ad keppa á MXON í ár, og taka nokkrar utanhúss keppnir til ad hita sig upp fyrir keppnina í Denver, USA í September.



Smellid á myndina til ad sjá video

 

Deila á:

Facebook   
 

Keppendalisti fyrir Klaustur

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Keppanda listinn fyrir Klaustur er kominn á netid. Getid séd hann hér

 

Deila á:

Facebook   
 

Tanið !

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Það er ekki seinna vænna en að fara að koma upp smá tani fyrir sumarið. Ég er búin að taka eftir því á öllum þessum myndum af Honda þrek æfingunum og hjá motocross skólanum að það gleyma allir að tana! Það þýðir ekkert að þykjast vera í svaka formi og gleyma því svo að tana. Tanið er nýjasta og lang flottasta sólbaðsstofan í bænum, til húsa í Spönginni 33. Hvet alla til að fara og gera sig sæta fyrir sumarið.

 

 

Deila á:

Facebook   
 

Athafnir helgarinnar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Mikið var um að vera þessa helgina, 13. umferðin í AMA supercrossinu fór fram með Chad Reed innanborðs. Torrent er ekki komið á netið ennþá, en það ætti væntanlega að detta inn hérna í dag eða kvöld.

2. umferðin í FIM heimsmeistarakeppninni fór fram á Mantova brautinni í Ítalíu og var rétt í þessu að klárast. Aðra eins baráttu og spennu hef ég sjaldan séð einsog var í MX2 flokknum þennan daginn. Í báðum mótóum var baráttan alveg þangað til að flaggið féll og hún fékk mann til að bíta aðeins af nöglunum. Ég ætla ekki að eyðileggja fyrir þeim sem hafa ekki séð keppnina með því að birta einhver úrslit, en ég mæli eindregið með því að þið horfið á endursýningu af keppninni ekki seinna en NÚNA STRAX á Freecaster.tv

startoff italy

Ég ætlaði að keppa í Lommel þessa helgina, en þar sem ég er einn í koti, ákvað ég að sleppa því. Allir sem ég þekki hérna fóru til Ítalíu að horfa á keppnina þannig að ég fór bara að hjóla í Hondapark í staðinn og tók því "rólega".  Framundan er bara hjólerí hjá mér, og auðvitað vinnan. Ef einhverjir hafa áhuga á að senda demparana sína til mín og láta tjúnna þá hjá Han í Ultimate, að þá er það no problemmo. Sendið mér bara email á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og við græjum málið. Það eru nú þegar einhverjir íslendingar að senda dempara til mín í tjúnningu til að vera klárir fyrir sumarið. www.ultimateracingsuspension.com

Jonni

Jonni vakti greinilega mikla athygli hérna úti, var að flakka um netið hérna í vikunni og fann þessa svakalegu mynd af honum í Lommel.

Þangað til næst,

Aron #1

Deila á:

Facebook   
 

Ný heimasíða !

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Þá er nýja síðan kominn í loftið! Er á fullu að leggja loka hönd á verkið, betrumbæta, setja myndir inn ofl.

Endilega skiljið eftir kveðju!

Deila á:

Facebook   
 

Fyrsta keppnin í Belgíu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Jæja þá er fyrsta keppnin í Belgíu á þessu ári afstaðin. Ég fór í síðustu viku til þess að sækja Jonna.is útá flugvöll en hann kom til mín í tíu daga að æfa. Í leiðinni fórum við í vöruskemmuna hjá Kawasaki í Hollandi að sækja tvö splunku ný 2010 Kawasaki hjól. Eitt 450cc fyrir mig og eitt 250cc fyrir Signý. Við erum búnir að vera duglegir að hjóla þennan tíma sem Jonni er búin að vera hérna en á mánudaginn kepptum við svo í páskakeppni, sem var önnur umferð BMB mótaraðarinnar. Keppnin fór fram á Axel brautinni í Hollandi, sem er sandbraut einsog allar aðrar brautir í Hollandi.

Við fórum kvöldið áður á keppnina og gistum á svæðinu ásamt endalaust mikið af öðru fólki. Við gistum í race bílnum hennar Signýar #43 sem myndaði helvíti kósý stemmingu hjá okkur strákunum. Við lentum í miklu veseni með að taka bensín og leit út á tímabili að þetta yrði önnur keppnin í röð sem ég myndi missa af. Við gátum ekki tekið bensín á leiðinni á keppnina eftir ítrekaðar tilraunir og tveggja klukkutíma rúnt framm og til baka í nágrenni brautarinnar, annaðhvort voru bensínstöðvarnar lokaðar og ekki með sjálfsala eða þá að kortunum okkar var hafnað. Við vöknuðum klukkan 7 og Jonni brunaði að leita að bensíni, á meðan sat ég einsog hálfviti á miðju túni að passa plássið okkar fyrir bílinn. Jonni kom svo tvem tímum síðar, eða rétt fyrir níu með bensín þannig að við gátum tekið þátt í keppninni, en æfingarnar byrjuðu einmitt klukkan 9.

Við skráðum okkur báðir í Pro flokka, ég í Mx1 og Jonni Mx2. Við fórum í tímatökur, Jonni byrjaði og endaði 29. af 29 í tímatökunum. Ég fór og endaði 30. af 31. í mínum flokk svo útlitið var ekki bjart hjá okkur félugum. Ekki varð útlitið bjartara fyrir fyrsta motoið hjá Jonna þar sem honum var meinuð þáttaka vegna þess að það vantaði keðjuhlífina yfir fremra tannhjólið. Við reyndum einsog við gátum að verða okkur útum hlíf en allt kom fyrir ekki og Jonni endaði á því að verða yfir mekki Ómarsson Racing Team þennan daginn. Ég fór í mitt fyrsta moto og keyrði ágætlega fyrstu mínúturnar, svo fór ég að pumpast upp og þreytast aðeins um mitt moto enda nýbyrjaður að æfa aftur eftir viðbeinsbrotið. Motið var rauðflaggað eftir umþb. 15 mínútur vegna þess að ökumaður hafði keyrt á áhorfanda sem meiddist alvarlega og því var motoið stoppað. Ég endaði því 20. í fyrsta motoinu og varð ekki hringaður sem ég var hæst ánægður með :) Í seinna motoinu keyrði ég mun betur og þreyttist ekki neitt, né pumpaðist upp. Ég keyrði á fínum dampi og fór að týna upp gaura um mitt moto. Ég kom í mark og endaði aftur 20. og skoraði 2 stig eftir daginn, en það gaf mér þó einungis 25.sætið overall.

Deila á:

Facebook   
Nánar...
 
Síða 3 af 4

Sponsors

nitrologosmall23







mxs.is


Nýjustu fréttir

Vinsælast