Aron66.is

Check in report

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Þá koma úrslit úr fyrstu keppni:
Aron Omarsson - Not registered.

Það vildi svo skemmtilega til að þegar ég mætti um morgunin til að skrá mig í Genk keppnina, jafnframt mína fyrstu keppni í Belgíu þetta árið, þá ákváðu belgarnir bara að breyta klukkunni sama dag, og flýttu henni um einn klukkutíma. Þannig að þegar ég mætti klukkan 8 um morgunin til að skrá mig til leiks, þá var klukkan hjá þeim bara orðin 9 og ég missti af skráningar tímanum. Þannig fór nú það. En það er fleiri keppnir framundan, mánudaginn næsta er önnur keppni ársins í svokölluðu BMB meistaramóti. Hún er í sandbraut sem heitir AXEL. Formið er að koma hægt og sígandi eftir meiðslin, verð að sjá til hvað ég endist með þessum köllum hérna í sandinum.

Á þriðjudaginn sótti ég Jonna.is útá flugvöll en hann er kominn hérna til mín og verður fram til 8.apríl. Í gær fórum við í Lommel, fórum í keppni hver kæmist flestu hringina í henni og keppnin endaði þannig að við komumst báðir 6 hringi! Hún var gjörsamlega ókeyrandi einsog við kölluðum það, en "perfect for practice" einsog belgarnir kölluðu það. Í dag fórum við svo í braut sem kallast Helecine, sem er eina pjúra moldarbrautin í belgíu. Dagurinn var vægast sagt GEÐVEIKUR, en það rigndi til að byrja með og svo kom sólin upp til að þurrka brautina og hún reyndist fullkomin eftir það. Reynir, Eysteinn, Biggi og Eyþór komu í dag. Ég held að Reynir og Eysteinn hafi tekið báðir tvo klukkutíma moto, það var ekki hægt að stoppa þá. Það heyrðist ekkert nema "þetta er svo geðveik braut" allan daginn.

Næsta mánudag er einhver frídagur hérna í belgíu, og þá ætlum við Jonni að keyra til Hollands og keppa í þessari keppni sem verður í Axel brautinni. Ég er kominn á nýtt 2010 450 hjól, svo nú er engin afsökun. Fer og sýni þessum belgum hvernig á að gera þetta. Hérna eru nokkrar myndir frá deginum í dag, reyndar bara síðustu tuttugu mínuturnar sem ég hjólaði á Jonna hjóli þar sem ég sprengdi á mínu.

Deila á:

Facebook   
Nánar...
 

Halló halló

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Sælir nú! Svo fór að skjárinn á tölvunni minn brotnaði og þurfti ég að senda tölvuna í viðgerð til íslands, svo ég hef ekkert verið internettengdur í tæpar tvær vikur! En nú er það vesen á brott, og við blasa ekkert nema bjartir tímar. Ný heimasíða kemur í loftið á næstu dögum, og allskyns frábærir hlutir í gangi. Ég er búin að hjóla í viku núna eftir brotið, svo ég er rétt að koma mér í gang. Um helgina er ég að fara að keppa í BMB mótaröðinni, en BMB er eitt af þrettán samböndnum hérna í Belgíu (við erum með eitt á íslandi, MSÍ). Þetta er fyrsta keppni sumarsins í BMB mótarröðinni og fer hún fram í minni heimabraut, Genk. Tekur mig einungis 5 mínútur að keyra á brautina, ég fór að skoða hana í dag og hún lítur vægast sagt SVAÐALLEGA vel út.

Reynir Jóns, Biggi Bróðir hans og Eysteinn MotoMos Ýta eru komnir til belgíu að hjóla og er ég að fara að hitta þá á morgun. Þeir verða hérna fram yfir páska svo ég reyni að hjóla með þeim eins mikið og ég get á meðan þeir eru hérna. Þriðjudaginn næsta kemur svo Jonni.is í heimsókn og ætlar að vera hérna í 9 daga að æfa með mér, þannig að það er nóg framundan.

Ég er kominn með vinnu í hollandi, vinn tvo daga í viku, mánudag og þriðjudag sem gæti ekki hentað betur því það er allt lokað á mánudögum hvort sem er, svo vinn ég þriðjudag, og get þá hjólað miðvikudag, fimmtudag og föstudag og svo mun ég keppa nánast hverja helgi þangað til ég kem heim fyrir fyrstu keppnina heima á íslandi. Fyrirtækið sem ég er að fara að vinna hjá heitir Ultimate Suspension, og er þetta demparafyrirtæki sem sérhæfir sig bara í Motocross fjöðrun. Fyrsti dagurinn minn er á mánudaginn næsta, sweet! Getið skoðað heimasíðuna hans hérna www.ultimatesuspension.com en hann sér um fjöðrun fyrir flesta ökumenn í hollenska meistaramótinu, nokkra í belgíska og nokkra í heimsmeistara keppninni.

Kem svo með fréttir og update eftir keppnina á sunnudaginn.

Ég verð svo að deila með ykkur þessu hérna. Ég veit ekki alveg hvort hann sé hollenskur eða belgískur, og hvort þetta sé grín eða ekki, en það er hvorki hægt að kveikja á sjónvarpi né útvarpi hérna án þess að þetta sé í spilun.

Deila á:

Facebook   
 

Dót til sölu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa
Er með eftirfarandi hágæða búnað til sölu.

Fly Throphy hjálmur í stærðinni Small

Verð: 20.000

Einnig með FLY Fatbar stýri, í gunmetal gray lit. Með stýrinu fylgir stýrispúði.
Stýrið hefur beygjuna: Breidd 800, Hæð 77, Pullback 57.
Sem er sama beygja og ég og Chad Reed notum :)
Verð: 12.500

Hvorutveggja er splunkunýtt, og afhendist um páskana.

Deila á:

Facebook   
 

Keppni í Onda

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

æja, þá er ég kominn á bak aftur. Fór að hjóla í fyrsta skipti eftir brotið á sunnudaginn var, og það í keppni. Þetta var keppni sem fram fór í braut sem kallast Onda, og var þessi keppni hluti af Valencia meistaramótinu. Ég skráði mig til leiks í Mx1 án þess að vita nokkuð hvað öxlin hafði uppá að bjóða. Ég fór í æfingar um morgunin og setti hraðasta hringinn, sem skilaði mér að vera fyrstur að velja starthlið það sem eftir var dags. Ég fann ekkert sérstaklega mikið fyrir sársauka í tímatökunum svo dagurinn lofaði góðu.

 

Ég fór í frysta moto með opnum huga um að draga mig í hlé ef hendin yrði til vandræða. Ég náði ágætis starti, kom 4-5 útúr fyrstu beygju og blockpassaði svo 2 í einu í næstu beygju sem kom mér strax í annað sætið. Þá næst fór ég á eftir Danni Lavila #79 sem var þá fyrstur, ég elti hann i 2-3 hringi og var buin að finna nokkra staði þar sem ég var hraðari en hann. En því miður lak ég á hausinn og drap á og missti hann því frá mér, ég kom hjólinu í gang, var þá orðinn þriðji. Um leið og ég fór af stað aftur gler hörðnuðu hendurnar á mér og ég pumpaðist svakalega upp, enda ekkert buin að hjóla í 4 vikur. Ég hélt þá ágætis dampi þrátt fyrir armpump og vann mig aftur upp í annað sætið, stollaði hjólinu þá og varð aftur orðinn þriðji. Enn og aftur vann ég mig uppí annað sætið og hélt því til loka.

 

Deila á:

Facebook   
Nánar...
 

Ablas engles?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa

Smá update. Ég er farinn út aftur til Belgíu og planið er að vera þar eins lengi og fjármagn leyfir. Ég fór út á fimmtudaginn síðasta, sótti bílinn minn og gerði hjólið klárt. Svo á sunnudaginn kom Signý út til mín og við brunuðum til spánar, og ætlum að vera þar í 2-3 vikur. Ferðin hefur gengið ...

Deila á:

Facebook   
 
Síða 4 af 4

Sponsors

nitrologosmall23







mxs.is


Nýjustu fréttir

Vinsælast