Þegar kemur að motocross þjálfun er Aron einn reynslumesti Motocross þjálfari landsins. Aron hefur starfað sem Motocross þjálfari á Íslandi síðustu 5 ár á milli þess sem hann hefur spreytt sig á erlendri grundu í motocross keppnum víðsvegar um heiminn. Aron hefur hlotið þjálfun frá erlendum aðilum í nokkur ár og einnig lært motocross kennslu hjá einum virtasta motocross skóla í Ameríku, Gary Semics Motocross School.
Aron er annar eiganda Motocross Skólans ( www.mxs.is ) en hann er eini skólinn sinnar tegundar á Íslandi. Meðeigandi Arons er Örn Sævar Hilmarsson og hafa þeir félagar sett upp fulla dagskrá fyrir komandi sumar sem ætti að henta öllum hjólamönnum og konum. Námskeiðið sem umræðir verður einungis eina hóp námskeiðið sem Motocross Skólinn býður uppá í sumar. Námskeiðið er byggt þannig upp að kennt er frá klukkan 18:00 – 19:30 á mánudögum og miðvikudögum frá byrjun Júní fram til lok Ágúst. Semsagt, tvisvar í viku í þrjá mánuði. Námskeiðinu verður skipt niður í hópa, og verða 10 saman í hverjum hóp. Skipt er eftir hjólastærðum og getu. Fyrir nánari upplýsingar, farið inná heimasíðu skólans www.mxs.is .
Fyrir þá sem vilja nánari og perónulegri kennslu, að þá tekur Aron að sér einkatíma allt frá 1 uppí 4 manns. Einkakennslan er hugsuð til þeirra sem vilja læra meira og betur á skemmri tíma. Kjörið fyrir keppnisfólk með metnað! Nánari upplýsingar varðandi einkakennsluna, sendið póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Þjálfun









